Færsluflokkur: Bloggar
6.10.2007 | 17:14
Miðpunkturinn á götum úti!
Sértu Evrópubúi og í XXXL-stærð, og vantar einhverja athygli á götum úti, þá skaltu labba í fjölskyldugarðinn og ströndina, eða hvar sem þú ert í Kína. Þannig var amk tilfinningin að ganga um götur og Qingdaoborgar í dag, þar sem allra augu beindust að mér. Kannski ekki nema von, þar sem hvergi var hvítan mann að sjá og allir þessu ágætu Kínverjar eru einhvern veginn allir eins, smávaxnir, dökkhærðir og flottir. Þar er engum aukakílóum fyrir að fara. Man ekki til þess að hafa séð digran Kínverja í túrnum hérna til Qingdao.
Alveg mögnuð ferð og maður kemur heim reynslunni ríkari, svo ekki sé talað um kínverskuna. Nú get ég sagt hvaðan ég kem, hvernig ég á að þakka fyrir mig og hvernig á að skála! Hér hefur verið komið fram við Íslendingana eins og þeir væru í guðatölu, öllum götum lokað á meðan við erum á ferðinni, jafnvel þótt Ólafur Ragnar og Dorrit eru ekki með, og skrítin tilfinning að horfa á fólkið á götum úti, þar sem eins og slökkt hafi verið á kvikmynd og hún sett á pásu á meðan við förum á klóið. Mér skilst að sjaldan hafi verið jafn mikið tilstand í þessari borg og útaf Frónbúunum.
Nú bíður maður bara spenntur eftir heimferðinni, og vonandi þarf ekki að skipta um fleiri varahluti í júmbóþotunni.... Gambei Ging Dao!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.10.2007 | 10:17
Í lögreglufylgd í Kína
Mátti til með að hripa niður smá bréf frá Kína. Staddur hér í borginni Qingdao í vinnuferð fyrir Moggann, að fylgjast með Eimskipsmönnum opna nýja frystigeymslu og treysta samskiptin við Kínverja. (Endilega kaupið Moggann um helgina!)
Flugum hingað í einni strikklotu með Boiing jumbóþotu, nærri 10 tímar, og lengsta flug sem maður hefur afrekað. Aldrei stigið upp í svona ferlíki, merkilegt að þetta komist á loft, og það svo sem byrjaði ekki vel í gærkvöldi í Keflavík, þegar ferðin tafðist um tvo tíma vegna bilunar í einum hreyflinum. Kannski ekkert sérlega uppörvandi fréttir fyrir svona langt flug, að það voru bara ræstir út flugvirkjar og þeir skiptu um varahluti á mettíma.
Fengum konunglegar móttökur í Qingdao og ljóst að Eimskip og Ísland eru í miklum metum í borginni. Fáum lögreglufylgd út um allt, meira að segja í skoðunarferðir, og gatnamótum lokað á meðan. Og forsetinn okkar, Ólafur Ragnar, ásamt Dorrit, eru ekki einu sinni mætt. Reynsluboltar í viðskiptaferðum til útlanda muna ekki aðrar eins móttökur. Okkur líður svolítið eins og þjóðhöfðingjum, óbreyttir Íslendingar um borð í rútum.
Hef ekki komið til Kína áður en þetta er nokkuð myndarleg borg, gríðarleg uppbygging og kranar úti um allt. (Það er víðar byggt en í Reykjavík!) Borgin hefur líklega evrópskara yfirbragð en margar aðrar kínverskar borgir, enda er hún nánast stofnuð af Þjóðverjum fyrir rúmum 100 árum. Þeir hafa greinilega kennt kínverjunum að brugga ágætis bjór því Tsingtao-bjórinn fær bestu meðmæli!
Læt hér staðar numið, kvöldverður býður eftir manni og smá íslenskt partí þar sem mér skilst að Jón Ólafs og Eyjólfur Kristjáns munu troða upp. Menn eru flottir á því hérna, og hótelið ekkert slor....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.10.2007 | 22:49
Alzheimer light
Heyrði hreint ágætis sögu í kvöld af ónefndum Vestfirðingi, sem var jafnan utangátta og mikill prófessor til orðs og æðis. Einhverju sinni mun hann hafa verið að hella í kaffibolla sinn er hann sagði líkt og einhver annar en hann væri að tala, er bollinn var að fyllast: Takk, takk, ekki meira. Vel má vera að þetta sé þjóðsaga, en ágæt er hún engu að síður.
Sagan fékk mann til að rifja upp í huganum ýmis smávægileg atvik úr hinu daglega lífi, sem virðist benda til að maður geti verið hættulega mikið utan við sig, allt að því með Alzheimer light, þó að ekki vilji ég gera lítið úr þeim hörmulega sjúkdómi sem herjar á eldra fólk. En þetta hefur þó ágerst á ofanverðum fertugsaldrinum og nú í byrjun fimmtugsaldursins. Maður er kannski bara orðinn fjári gamall.
En það er ekki normalt að gleyma og týna símanum í tíma og ótíma, skilja peningaveskið eftir í buxum aldrei þessu vant og henda þeim svo í þvottavélina, standa upp frá básnum í vinnunni til að sækja blað úr prentaranum en koma svo til baka á borðið með vatnsglas úr eldhúskróknum, beygja á götum borgarinnar til hægri þegar maður ætlaði til vinstri, og þannig mætti lengi telja.
Þetta eru svosem ekki stórvægileg afglöp en geta verið vísbending um alvarlega þróun. En allt er á réttum stað núna og ég held ég standi bara upp og fái mér vatnssopa. Það er slökkt á prentaranum...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.9.2007 | 17:34
Dauði daðurdrottningarinnar
Merkilegt að sjá þessa fregn sömu daga og Bond-myndirnar rúlla nánast stöðugt á heimilinu, eftir að hafa fengið myndasafnið lánað komplett.
Í þeim gömlu Bondurum sem við höfum séð er yndislegt, allt að því hallærislegt, að sjá hvernig æðsti njósnari hennar hátignar og Moneypenny daðra út í eitt. Alltaf er gefið í skyn að milli þeirra sé eitthvað ástarsamband, sem er síðan í raun ekkert, enda flakkar Bondarinn á milli bólkvenna eins og honum sé borgað fyrir það, sér í lagi í hinum eldri myndum. Bond-myndir nútímans eru í raun sárasaklausar hvað kynferðislegt samband söguhetjanna varðar ef mið er tekið af fyrstu myndunum. Þar er nú ekki að sjá neitt sérstaklega mikla virðingu fyrir kvenkyninu og merkilegt að feminístar séu ekki búnir að fordæma karlrembu og kvenfyrirlitningnu gömlu Bond-myndanna. Kannski eru þeir búnir að því og það hefur farið framhjá manni, enda hefur maður svosem ekki átt upp á pallborðið hjá feministum gegnum tíðina, þessi líka mjúki maður!
En Moneypenny var þrátt fyrir allt fáguð og hélt virðingu sinni með reisn, hún var ekki konan sem stekkur upp í bólið við fyrstu kynni, líkt og bomburnar sem Bondarinn tældi til sín. Leikkonan Lois Maxwell stóð fyrir sínu, líkt og leikararnir sem túlkuðu M og Q. Þeirra er sárt saknað þó að leikrænir tilburðir standist kannski ekki algjöran samanburð við það besta sem við sjáum í kvikmyndum nútímans.
Hvað Bond-seríuna varðar, þ.e. þær myndir sem við erum búin að sjá (flökkum fram og til baka í tímaröðinni) þá stendur Sean Connery uppúr og ég hallast líka æ meira að því að Pierce Brosnan var bara fjári góður þrátt fyrir allt, amk húmorískastur. Í sumum myndum er Roger Moore herfilegur, verð ég að segja, en skánar þó með aldrinum.
Hinn nýi Bond lofar góðu, en hann er bara eitthvað annað en Bond, þvílíkt er hörkutólið orðið að hann jaðrar við að vera vélmenni í anda Schwarzenegger.
![]() |
Moneypenny" látin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2007 | 23:24
Gaggandi gagnrýnendur
Hvort sem það var af því að ég sá Jón Sigurðsson 500-krónuseðil í Framaradressi á Fram-KR í Laugardalnum í gær eða ekki, þá rataði hann undir geislann í kvöld þegar ákveðið var að slökkva á imbakassanum og hlusta á músík. Afskaplega þægilegur og ljúfur diskur á að hlusta, og vel gert hjá stráknum. Þessir ljúfu tónar fengu mann til að rifja upp að undanfarið hefði ég hlustað á mjög áheyrileg lög frá Magna og hinni færeysku Eivöru, af nýjum diskum þeirra. Öll eiga þau þrjú það sameiginlegt að hafa fengið heldur slaka dóma frá gagnrýnendum fyrir þessa diska sína, og undanskil ég ekkert Moggann minn hvað það varðar. Þar hefur einnig mátt lesa skrítna og full neikvæða dóma.
Eftir að hlýtt á þessa ágætu diska undrast maður þessa ólund í gagnrýnendum, og ekki að undra að þetta sé farið að pirra listamennina, sbr ummæli Magna í Mogganum um daginn. Við hverju býst þetta fólk eiginlega? Tónlistarkraftaverki á heimsmælikvarða á hverjum disk? Er eitthvað að því að búa til rólega og þægilega tónlist til afþreyingar öðru fólki? Af hverju mega tónlistarmenn ekki senda frá sér afurðir sínar, án þess að vera rakkaðir niður af einhverjum fúlum og ófullnægðum gagnrýnendum? Eftir þessa reynslu mína fær maður æ betri sýn og skilning á listaverkinu eftir Erling Jónsson myndhöggvara sem lengi stóð í anddyri Moggans í Kringlunnni og bar heitið Gaggrýnandinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.9.2007 | 22:04
Aukakrónurnar bara hrynja inn...
Ég tók lest í London um daginn og þá bara fylltist vagninn af öllum þessum aukakrónum úr Vörðu Landsbankans (sjá mynd) sem fylgja mér hvert sem ég fer og hvað sem ég geri. Já, alltaf er maður að græða, bara ekki eins mikið og bankinn er að græða á mér...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2007 | 16:24
Sofnað á verðinum
Fyrst er ég rakst á þessa mynd á netinu hélt ég að þarna færi kollegi minn ágætur, og mikill veiðimaður, Guðni Einars, en hann hefur ásamt öðrum skyttum nýlokið hreindýraveiðitímabilinu. Þegar betur er að gáð er þarna annar ónefndur maður, sem lítur miklu verr út en Guðni sem er orðinn svo slank og fínn að maður þarf að fara að taka sig á í ræktinni! Einhver laumaði því að mér, sem greinilega finnst ég hafa bætt of miklu á mig, að yfirskrift þessarara bloggsíðu ætti ekki að vera "BJB - SPEKI og SPÉ" heldur miklu frekar "BJB - SPIK og SPÉ".....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2007 | 16:51
Flott 8-2-0 kerfi hjá Birmingham!
Beneitez hefði betur byrjað með fjóra sóknarmenn inn á í dag, þá Torres, Crouch, Kuyt og Voronin, til að eiga séns í vörnina hjá Birmingham. Hvernig er hægt að spila fótbolta á móti liði sem spilar leikkerfið 8-2-0?! Mínir menn kannski ekki með sinn besta dag en dagsskipunin hjá gamla Bruce-brýninu var að pakka saman í vörn og vona hið besta. Þvílík leiðindi, það á að banna svona fótbolta. Annars tel ég að Voronin komi betur út á miðjunni en fremsti maður, ekki laust við að hann sé í þyngri kantinum þessa dagana. Það verður að taka af honum nammidagana!
Verst var að heyra af 5-0 sigri Arsenal á sama tíma, nú verða Arsenal-aðdáendur á mínum vinnustað gjörsamlega óþolandi eftir helgina. En okkar tími mun koma, stend enn við þá spá mína að Liverpool standi uppi með Englandsmeistaratitilinn í vor.
![]() |
Stórsigur Arsenal - markalaust hjá Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.9.2007 | 15:25
Merkilegur bisnes á Vogi - Frábær forsíða Blaðsins
Merkilegt hvað kollegar mínir eru duglegir að draga Þórarinn Tyrfingsson á Vogi fram í sviðsljósið þegar löggan kemst yfir mikið magn fíkniefna. Skyldi hann kannski hringja sjálfur? Þórarinn er jafnan beðinn að verðmeta haldlögð fíkniefni, hann ku jú vera með gjaldskrána fyrir framan sig, og síðan spurður um framboð og eftirspurn á markaðnum. Ekki laust við að það hlakki í kallinum yfir ástandinu, því minna framboð því meiri líkur á að dópistarnir sjái að sér og fari í meðferð. Meiri bisnes fyrir Vog.
Sannarlega ánægjulegt að löggan skuli hafa stoppað þessa skútu í Fáskrúðsfirði, frábærlega að verki staðið þar og fagmannlega, en hvað kemur það yfirlækni SÁÁ við?
Mögnuð forsíða
Það ber hins vegar að hrósa Blaðinu sérstaklega fyrir forsíðu þess á föstudaginn um fíkniefnafundinn í Fáskrúðsfirði. Með því flottara sem sést hefur á forsíðu íslensks dagblaðs í langan tíma. Óli Steph er á hárréttri línu með þetta blað, sem gjörsamlega bakaði forsíðu Fréttablaðsins þennan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.9.2007 | 22:55
Newcastle með nýjan styrktaraðila?!
Magnað að fylgjast með framvindu mála í Bretlandi kringum sparisjóðinn Northern Rock. Fólk flykkist í útibúin í hrönnum að taka út sparifé sitt, sama hvað fjármálasérfræðingar segja um að búið sé að bjarga sjóðnum. Múgæsingin er algjör.
En Northern Rock kemur víða við, m.a. sem aðalstyrktaraðili Newcastle Utd í úrvalsdeildinni (eða Njúvkastel eins og Gaupi orðar það) Eftir inngrip Seðlabanka Englands fyrir helgi voru menn fljótir að skipta um auglýsingu á búningunum, eins og sést hér hjá Alan Shearer ... eða þannig!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
-
annapala
-
attilla
-
bjarnihardar
-
davidlogi
-
esv
-
elvabjork
-
ellikonn
-
eysteinn-thor
-
gudrunvala
-
hoskuldur
-
jamesblond
-
kalli33
-
kristjanb
-
raggibjarna
-
ragnhildur
-
rungis
-
naiv
-
seth
-
sigurdurarna
-
soli
-
laufabraud
-
gudni-is
-
gusti-kr-ingur
-
businessreport
-
ornsh
-
vitinn
-
gattin
-
muggi69
-
sverrirth
-
sveitaorar
-
gudrununa
-
okurland
-
steinunnolina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007