Áttum þetta skilið - sorrý

Hárrétt hjá Benitez að Bennett dómari breytti gangi leiksins, en mínir menn voru einfaldlega ekki nógu góðir - því miður. Vörnin var úti að aka, Gerrard varla svipur hjá sjón og Torres sívælandi, og þótt Reina hafi á stundum virst óöruggur í markinu þá bjargaði hann okkur nokkrum sinnum meistaralega í frábærum úthlaupum. Torres hafði eitthvað til síns máls um að spjalda Ferdinand fyrir olnbogaskot, og "vonandi" hefur hann klæmst nógu mikið við dómarann til að réttlæta gula spjaldið fyrir mótmæli. Eins og það virkaði heim í stofu var þetta harður dómur. En síðan kom skandallinn, og það sem eyðilagði leikinn fyrir okkur. Tuðið í Mascherano var auðvitað ekkert annað en asnaskapur, maður kominn með gult spjald, og ótrúlegt að félagar hans reyndu ekki að koma honum burtu. Nær hefði verið fyrir Benitez að húðskamma Mascherano fyrir óíþróttamannslega framkomu, dómgreindarleysi leikmannsins var algjört. Ef breska knattspyrnusambandið sektar hann ekki, ætti Liverpool að gera það.

Dómararnir eru ekki fullkomnir, og þessi Bennett átti ekki góðan dag, en leikmenn verða að halda aftur af sér. Framkoma eins og við urðum vitni að í dag, varð til þess að eyðileggja leikinn. Því miður. Mascherano er eiginlega búinn að rústa páskafríinu....Angry


mbl.is Benítez: Óskiljanlegt rautt spjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Galopið í Stólnum

Kíkti upp í Stólinn í dag og þar var fjölmenni mikið, þekkti varla annan hvern haus þannig að utanbæjarfólkið var í meirihluta. Glæsileg aðstaða sem Viggó og félagar hafa komið upp, veðrið var frábært og lyftan hafði vart undan. Hægt er að skoða myndir úr brekkunum á vef Tindastóls. Ekki mikið mál að renna norður í Stólinn, bara svo á ball með Geirmundi í kvöld og taka léttan Alpatvist...
mbl.is Lokað í Bláfjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þreytt spurningakeppni fjölmiðlanna

Það er eitthvað við spurningakeppni fjölmiðlanna þetta árið sem er ekki að virka, gerði það amk ekki í dag í bílnum á norðurleið. Þetta segi ég algjörlega óháð því að mínir menn á Mogganum og mbl.is duttu út í fyrstu umferð, þau stóðu sig með sóma, þannig að hér eru engin tapsárindi í gangi! En maður verður samt að fá að tuða smá.

Það er eins og stjórnandinn sé búinn að vera í þessu of lengi, og vilji hespa þættinum af sem fyrst. Í þættinum í dag fékk maður td. aldrei að heyra hvernig stigin fóru, viðureignirnar voru búnar áður en maður vissi af, og ekkert upplýst um stig hvers liðs. Á stundum virkaði keppnin eins og þetta væru nokkrir hressir fjölmiðlungar komnir saman á Ölstofunni og þeir vissu ekki að væri verið að senda spjall þeirra út á öldur ljósvakans. Spurningakeppni af þessu tagi verður líka að vera fyrir hlustandann, ekki bara keppendur og stjórnandann, þó að ég viti vel að fátt er skemmtilegra en að hitta kollegana á góðri stund.

Annars áttu liðsmenn Víkurfrétta besta sprett dagsins, þegar þeir klikkuðu á skógarþrestinum, þrátt fyrir að stjórnandinn gæfi þeim allar vísbendingar sem hugsast getur.


First we take Manhattan, then we take Berlin...

Einhver óútskýrð ró færðist yfir mig er þessi dráttur varð ljós, tel Arsenal verða enga hindrun, þeir mega hafa sigur á okkur í deildarleiknum þarna á milli, og svo er það bara Chelsea í 4 liða úrslitum. Engar áhyggjur. Loks annað hvort Barcelona eða Man Utd í Moskvu í maí. Allt fyrirséð...

Eftir dráttinn var maður farinn að raula lag Leonards Cohens, First we take Manhattan, then we take Berlin....


mbl.is Arsenal dróst gegn Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er hornspyrnuþjálfarinn?

Það má Ólafur Jóhannesson eiga að hann er bráðsnjall. Sópar til sín öllum helstu knattspyrnuþjálfurum landsins, heyrði Willum Þór segja í útvarpinu í kvöld þetta sanna hve leiðtogahæfileikar Ólafs væru miklir, hann hefði líka verið svo duglegur að sækja leiki og fylgjast með leikmönnum! Nú eru komnir sérstakir aðstoðarmenn til að fylgjast með mótherjum Íslands. Hvað mun þá aðstoðarþjálfarinn Pétur gera? Taka myndir á æfingum? Af hverju er ekki ráðinn rangstöðuþjálfari? Eða hornspyrnuþjálfari? Mæli með því að Gylfi Orrason verði ráðinn til að fylgjast með dómurum á næstu leikjum Íslands... Nei, ég segi bara svona.

Annars gott til þess að vita að KSÍ hafi efni á að ráða svona marga menn kringum landsliðsþjálfarann. Eflaust nægir peningar til eftir stúkubygginguna. En semsagt, algjörlega brilljant "múf" hjá Ólafi, hann getur þá kallað fleiri til ábyrgðar ef illa gengur. Næst sé ég fyrir mér að hann opni spjallþráð á vef KSÍ þar sem almenningur getur sent inn tillögur og hugmyndir, eða að þú getir gerst þjálfari í einn dag. KSÍ verður bara að passa sig að ráða ekki of marga, þannig að enginn þjálfari verði eftir til að taka við... LoL


mbl.is Ólafur fær fjóra aðstoðarmenn í viðbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spáin rættist - næstum því...

Þetta var aldrei spurning í kvöld, óttalegir klaufar hjá Inter að pota ekki inn eins og einu marki, þá hefði spáin mín gengið upp! Leiðin til Moskvu í vor heldur áfram, verst er hvað líkurnar eru miklar á að lenda á móti ensku liði í 8-liða úrslitunum. Það gæti orðið hindrun á leiðinni. En eins og mínir menn spila þessa dagana eru þeir ósigrandi, það er ekkert flóknara en það...
mbl.is Torres skaut Liverpool í 8 liða úrslitin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband