Hvar er hornspyrnuþjálfarinn?

Það má Ólafur Jóhannesson eiga að hann er bráðsnjall. Sópar til sín öllum helstu knattspyrnuþjálfurum landsins, heyrði Willum Þór segja í útvarpinu í kvöld þetta sanna hve leiðtogahæfileikar Ólafs væru miklir, hann hefði líka verið svo duglegur að sækja leiki og fylgjast með leikmönnum! Nú eru komnir sérstakir aðstoðarmenn til að fylgjast með mótherjum Íslands. Hvað mun þá aðstoðarþjálfarinn Pétur gera? Taka myndir á æfingum? Af hverju er ekki ráðinn rangstöðuþjálfari? Eða hornspyrnuþjálfari? Mæli með því að Gylfi Orrason verði ráðinn til að fylgjast með dómurum á næstu leikjum Íslands... Nei, ég segi bara svona.

Annars gott til þess að vita að KSÍ hafi efni á að ráða svona marga menn kringum landsliðsþjálfarann. Eflaust nægir peningar til eftir stúkubygginguna. En semsagt, algjörlega brilljant "múf" hjá Ólafi, hann getur þá kallað fleiri til ábyrgðar ef illa gengur. Næst sé ég fyrir mér að hann opni spjallþráð á vef KSÍ þar sem almenningur getur sent inn tillögur og hugmyndir, eða að þú getir gerst þjálfari í einn dag. KSÍ verður bara að passa sig að ráða ekki of marga, þannig að enginn þjálfari verði eftir til að taka við... LoL


mbl.is Ólafur fær fjóra aðstoðarmenn í viðbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband