25.2.2009 | 22:27
Með Gerrard á bekknum og Torres á annarri löppinni... já já
Já, já, þegar mikið liggur við eru mínir menn bestir, og Benitez klókur. Flott mark hjá Jússa, hann er seigur þegar á reynir. Mikið þarf að klúðrast á Anfield til að við komumst ekki áfram í 8-liða úrslitin. Og við með fleiri Spánverja í byrjunarliðinu en Real Madrid. Fyndið. Þegar á heildina er litið var þetta sanngjarn sigur, hinir rauðklæddu stjórnuðu leiknum lengst af - ef frá er talinn fyrsti stundarfjórðungurinn. Þá hefði Raúl blessaður alveg getað sett inn eitt mark. En til allrar hamingju gerði hann það ekki.
Hinum megin hefði Torres alveg getað potað tuðrunni inn skömmu síðar. Verra að drengurinn skyldi meiðast og lengstum spilaði hann á annarri löppinni. Í því ljósi, og að Gerrard sat á bekknum í 85 mínútur, er sigurinn enn sætari og merkilegri. Liðsheildin var frábær, allir voru með fulla meðvitund og á tánum allan tímann, kannski ef frá er talinn Rieira. Svo náði Babel blessaður ekki að sýna mikið.
Meistaradeildin er okkar deild, svo mikið er víst.
Liverpool skellti Real Madrid - Naumur sigur Chelsea gegn Juventus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- annapala
- attilla
- bjarnihardar
- davidlogi
- esv
- elvabjork
- ellikonn
- eysteinn-thor
- gudrunvala
- hoskuldur
- jamesblond
- kalli33
- kristjanb
- raggibjarna
- ragnhildur
- rungis
- naiv
- seth
- sigurdurarna
- soli
- laufabraud
- gudni-is
- gusti-kr-ingur
- businessreport
- ornsh
- vitinn
- gattin
- muggi69
- sverrirth
- sveitaorar
- gudrununa
- okurland
- steinunnolina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
Athugasemdir
miðað við hvað þið eruð ótrúlega lélegir er merkilegt hvað menn reyna á sig í meistaradeildinni já.
sá leikinn og spáði jafntefli fyrir leik. real hefði sætt sig við 0-0 en væntanlega ekki við 0-1. hvorugt liðið átti meira skilið að vinna en hitt enda datt þetta á einu marki.
en til hamingju, þoli ekki real þannig að ég unni þér þetta alveg.
arnar valgeirsson, 26.2.2009 kl. 00:37
jæja, þá er að smala öllum varnarmönnunum saman fyrir næsta leik gegn real. það má ekki fá á sig mark. absólút ekki.
en á síðu minni afhjúpa ég leyndarmál sem snertir þig persónulega, sem og aðra villuráfandi sauði. jebbs, ekki von að menn séu ekki alltaf með einbeytingu á hreinu sko.
arnar valgeirsson, 27.2.2009 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.