Stöð 2 hækkar og afruglaðist í boði Byrs

Hægt og hljótt hækkaði Stöð 2 áskriftina hjá sér um 3,7% um áramótin, líkt og lesa má um á vef stöðvarinnar. Er mánaðaráskrift nú komin í tæpar sex þúsund krónur, var um 5.300 fyrir ári, áður en vaskur af áskriftarverði fjölmiðla var lækkaður. Vafalaust eiga fleiri áskriftarmiðlar eftir að hækka hjá sér, en fyrir svona boltafíkla eins og mig er sjónvarpspakkinn orðinn æði fyrirferðarmikill í heimilisbókhaldinu. Með RÚV-skattinum kominn nálægt 15 þúsund kalli á mánuði. Hækkunin hjá Stöð 2 kemur kannski ekki svo mjög á óvart, miðað við allt það innlenda efni sem stöðin býður upp á og það er áreiðanlega dýru verði keypt og framleitt. Nýjasta afurðin er Pressan.

Hins vegar var annað sem maður tók eftir með Stöð 2 um hátíðarnar, sem mig rekur ekki minni til að hafa séð áður. Dagskráin var sýnd órugluð og opin öllum á aðfangadag og gamlársdag, að mig minnir. Það var þó ekki alfarið sökum góðmennsku Stöðvar 2 heldur var opin dagskrá í boði Byrs, sem fékk fyrir vikið merki sitt birt á skjánum allan liðlangan daginn á móti Stöðvar2 merkinu. Hafi þetta gerst áður þá hefur það farið framhjá manni, en þetta er engu að síður athyglisverð tekjulind sem stöðin hefur fundið. Þetta var í sjálfu sér ekki ósvipað því þegar Mogganum mínum var "pakkað inn" með auglýsingu frá Toyota í fyrsta blaði ársins. Skil vel að einhverjum hafi þótt það orka tvímælis, en eðlilega reyna fjölmiðlar að leita allra leiða til að fjármagna starfsemi sína. Aðeins þarf að gæta hófs og misbjóða ekki áskrifendum sínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Missti af Stöð 2 um hátíðarnar, en finnst þetta áhugavert með BYR. Kannast ekki við að hafa fengið afslátt á greiðsluseðlinum fyrir desember vegna dagana sem BYR bauð upp á...

Ómar R. (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 32038

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband