Hver er eiginlega ráðgjafi Strætó?

Nú hefur Strætó bs tekið í notkun enn eitt leiðakerfið. Vetraráætlun hefur tekið við af sumaráætlun og ferðum á að hafa verið fjölgað. Ekki á það við um leið 5, sem heldur áfram að ganga á hálftímafresti á meðan flestar leiðir ganga á kortersfresti. Það er ofboðslega sniðugt þegar þú þarft t.d. að taka leið 6 úr mið- og austurborginni til að ná fimmunni í Ártúninu. Þá er vissara að hafa valið rétta tímann, til að þurfa ekki að bíða í korter, líkt og ég lenti í fyrir helgi. Það tók mann hátt í 40 mín að komast úr Hlíðunum í Hádegismóana. Þetta er bara klikkun, ekkert annað.

Svo hefur einhverjum snillingi dottið í hug að breyta vefnum hjá Strætó með þeim afleiðingum að lengri tíma tekur að kynna sér leiðakerfið. Búin hafa verið til pdf-skjöl fyrir hverja leið, sem þú þarft að smella á og eins gott að hafa aflmikla tölvu. Ég hef engan áhuga á að prenta þessi leiðakerfi út heldur vil nota vefinn til að sjá þetta með aðgengilegum og skjótum hætti.

Nú er orðið frítt í strætó fyrir námsmenn og húrra fyrir því. En er ekki verið að brjóta einhver mannréttindi á öðrum farþegum sem þurfa að greiða fyrir þessa þjónustu? Hvað skyldu lögspakir menn segja um það? Nú er um almenningssamgöngutæki að ræða. Ég hef amk varla lengur geð í mér að nota þessa þjónustu og stutt í að keyptur verði annar bíll á heimilið....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband