23.8.2007 | 22:05
Varið ykkur á myndavélunum
Smá framhald af "stóra sektarmálinu". Gerði njósn hjá innheimtustöð sekta á Blönduósi, og þar fá stúlkurnar margar hringingar frá svekktum ökumönnum eins og mér, sem fá háar sektir úr þessum myndavélum fyrir að slefa yfir 90 km hraða. Annars góðhjörtuð símastúlka sýndi því mikinn skilning að svekkjandi væri að fá sekt fyrir sama hraða og lögreglubílar væru ekki að stöðva fyrir. Ég mun krefjast sönnunargagna!
En variði ykkur bara á þessum myndavélum í Melasveitinni, ekki langt frá afleggjarnum inn Hvalfjörðinn. Þær eru ofvirkar...
Bloggvinir
- annapala
- attilla
- bjarnihardar
- davidlogi
- esv
- elvabjork
- ellikonn
- eysteinn-thor
- gudrunvala
- hoskuldur
- jamesblond
- kalli33
- kristjanb
- raggibjarna
- ragnhildur
- rungis
- naiv
- seth
- sigurdurarna
- soli
- laufabraud
- gudni-is
- gusti-kr-ingur
- businessreport
- ornsh
- vitinn
- gattin
- muggi69
- sverrirth
- sveitaorar
- gudrununa
- okurland
- steinunnolina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 32166
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
Af mbl.is
Kjörkassinn
Var rétt að reka Hodgson og ráða King Kenny?
Athugasemdir
Mikið skil ég gremju þína. Mér fannst fáránlegt þegar lögum um sektir voru breyttar á síðasta ári. Lögunum var breytt eftir að ökumenn voru teknir nánast daglega við ofsaakstur og reyna síðan að stinga lögregluna af. Þeir fengu síðan lága sekt fyrir vikið.
Ég skildi ekki og mun ekki skilja af hverju það var verið að stórhækka sektir fyrir að fara aðeins yfir löglegan hraða. Áður voru ökumenn ekki sektaðir fyrr en þeir voru komnir 11 kílómetrum yfir löglegan hraða, en það var lækkað niður í 6 kílómetra. Ég hélt að breytingarnar á lögunum væru til að koma í veg fyrir ofsaakstur og sekta þá sem stunda slíkt. En lögin voru fyrst og fremst gerð til að búa til glæpamann eins og þig í þessu tilfelli.
Mummi Guð, 23.8.2007 kl. 22:59
Þakka þinn móralska stuðning Mummi. Væri samviska mín ekki hrein væri maður ekki að blaðra um þessa hluti. Vona bara að stórglæpamenn á vegum úti séu sektaðir samkvæmt því. kv bjb
ps. af forvitni kíkti ég á vefinn þinn og óska þér og fjölskyldunni alls hins besta í baráttunni með strákinn. Þú mættir bara vera aðeins jákvæðari um vin minn Jolla. Hann og landsliðið þurfa á öllum okkar stuðningi að halda. Við stóðum okkur bara mjög vel í gær, miðað við síðustu leiki, og vorum óheppnir að fá jöfnunarmark Kanadamanna á okkur. Talandi um Kóka-kóla listann þá segir það einhverja sögu um hann að þetta kanadíska lið skuli vera þar í 53. sæti !
Björn Jóhann Björnsson, 23.8.2007 kl. 23:50
Ég hef alltaf haft mikið álit á Jolla, fyrst sem leikmanni og síðan sem þjálfara 21 árs landsliðsins og ég var ánægður þegar hann var síðan ráðinn þjálfari a-landsliðsins. Því miður þá finnst mér Jolli ekki hafa staðið undir væntingum, en ég er samt ekki á því að lausnin sé að reka hann.
Mummi Guð, 24.8.2007 kl. 18:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.