Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
31.12.2008 | 15:44
Megi árið 2009 vera ár upprisu...
Óska landsmönnum, vinum og ættingjum, Púllurum og öllum öðrum árs og friðar. Megi árið 2009 vera ár upprisunnar og almennra þjóðþrifa. Árið 2008 er að klárast og við skulum læra af reynslunni, öll sem eitt, frá toppi til táar. Hugsum um það sem næst okkur stendur og gleymum munaðinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.12.2008 | 15:48
Rauðu jólin halda áfram
Það er við hæfi að úti séu aftur komin rauð jól, jörðin hvítnaði svona rétt á meðan Liverpool var ekki að spila!! Vonandi er Rauði herinn orðinn óstöðvandi, Keane búinn að finna fjölina sína og greinilega fullur sjálfstrausts. verra er að Kátur er ekki alveg upp á sitt besta, eða einfaldlega í rangri stöðu á vellinum. Hann er öflugri á köntunum.
Rétt hjá Samma Lee að hvíla Gerrard fyrir næstu átök. Okkar menn munu þurfa á öllum sínum kröftum að halda gegn Owen og félögum hjá Newcastell (eins og Gaupi orðar það...).
Lee: Höfum aldrei efast um Keane | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2008 | 23:45
Gleðileg rauð jól...
Maður er farinn að halda að titillinn sé í augsýn, eða þá að eitthvað meiriháttar plott sé í gangi milli Liverpool og Chelsea. Jafntefli á jafntefli ofan, en hið versta er að á meðan gætu Rauðu djöflarnir nálgast okkur af Gömlu tröð.
Ánægjuleg jól fyrir Benitez og alla aðra hjá Rauða hernum. Svo sannarlega gleðileg rauð jól framundan. Man hreinlega ekki svo langt aftur hvenær Liverpool var síðast á toppi deildarinnar fyrir jólin. Enda skiptir það engu, núið blífur...
Markalaust jafntefli Everton og Chelsea | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.12.2008 | 19:48
Athyglissjúkur dómari eyðilagði leikinn
Þó að maður fagni stiginu á Emirates-velli í dag, þá getur maður vel skilið gremju Arsenal-manna út í dómarann. Hef aldrei fílað Webb og hann sýndi það í dag að hann glímir við athyglissýki á hæsta stigi. Rauða spjald Adebayors var umdeilanlegt, sem og margir aðrir dómar á bæði lið. Við rauða sjaldið efldust heimamenn og Púllarar lögðu niður skottið, virkuðu óröuggir og voru klaufar að nýta sér ekki liðsmuninn. Niðurstaðan sanngjarnt jafntefli, hið fjórða í röð hjá Liverpool, og aðeins Newcastle hefur gert fleiri jafntefli í deildinni í vetur. Þetta er ekki nógu gott, við verðum ekki Englandsmeistarar með þessu framhaldi. En jólin eru rétt að byrja og vonandi hala mínir menn inn slatta af stigum.
Leiksins í dag verður minnst sem skólarbókadæmis um hvernig dómari getur eyðilagt toppleiki.
Arsenal og Liverpool skildu jöfn, 1:1 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.12.2008 | 01:11
Móralskt stig en mikið lifandis skelfing...
Eins magnað og það var hjá Gerrard að jafna leikinn 2-2 á nokkrum mínútum þá var það algjörlega ósættanlegt að bæta ekki við fleiri mörkum. Þrjú jafntefli í röð á Anfield gegn "litlum" liðum er ekki vænlegt ef félagið ætlar sér að hampa meistaratitlinum í vor. Ekki getum við endalaust flotið á hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum, líklegast fer Chelsea upp fyrir okkur með sigri á WHU. Eins vel og Rauði herinn lék í dag á köflum, þá sýndi þessi hraði leikur, ekki síst í fyrri hálfleik, að liðið er með of marga meðalmenn, bara sorrí, við verðum að viðurkenna það, Púllarar. Veikasti hlekkurinn er Bennajún, Dossena var úti á túni og Arbeloa er of mistækur. Kátur er vinnuþjarkur, sem við megum þó ekki missa, en hann er ekki að spila í réttri stöðu.
Ef Benitez leggur upp þá taktík að spila upp á miðja sóknina þá er Kátur ekki rétti maðurinn til að taka við skallaboltum. Liverpool sárlega saknar ljósastaura eins og Crouch og athyglisvert er að sjá hvernig Benitez heldur Robbie Keane núna út í kuldanum. Sama hversu leikmenn eru að spila illa inni á vellinum, Keane er ekki hleypt inn á eins og í dag. Hefði verið miklu meiri þörf á honum heldur en El Zahr og Leiva, sem skiluðu engu á lokamínútunum.
Ef mínir menn ætla sér Englandsmeistaratitil í vor verður að styrkja leikmannahópinn í janúar, svo einfalt er það. Liðið hefur að vera gera marga góða hluti í vetur en mikill vill meira. Tími til kominn að selja eitthvað af þessum meðalmönnum. Og hana nú...
Benítez vonsvikinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.12.2008 | 19:11
Djúpt áðí en ljúft...
Loksins skoruðu mínir menn mörk, það ekki bara eitt heldur þrjú stykki á rúmum 90 mínútum. Fæðingin var erfið en þegar hríðunum lauk á 70. mín var fátt sem stöðvaði Rauða herinn, meira að segja Jússi Bennajúnn skoraði. Eins gott fyrir karlinn því hann var búinn að fara illa með 1-2 góð færi. Athyglisvert að Benitez hvíldi Keane á bekknum, væntanleg fyrir næstu átök í Meistaradeildinni á þriðjudag, þó að það séu ekki mikil átök, við komnir áfram. Ekki nema að Keane sé ekki náðinni, blessaður.
Sigurinn í dag var afkskaplega kærkomin eftir jafnteflin og markaleysið undanfarið, viðurkenni að ég var kokhraustur fyrir leikinn gegn WHU sl. mánudag og spáin gekk ekki eftir, en mestu skiptir að við höldum toppsætinu og gefum það sko ekki svo glatt eftir.
Minni svo á að karlinn er kominn á Facebook, eða Snjáldurskinnu sem er ekki síðra orð. Fyndið fyrirbæri en skemmtilegt, m.a. búinn að stofna aðdáendaklúbb um Karlakórinn Heimi.
Arsenal, Liverpool og Chelsea unnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.12.2008 | 14:04
Vandinn í hnotskurn?!
Er það ekki einhvern veginn svona sem fyrirtækin byggðust upp í þenslunni? Nema að núna eru allir farnir af skurðbarminum og eftir eru þrælarnir að þrífa upp skítinn eftir hina..... Ja sei sei
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2008 | 13:36
Örlagadagur í toppbaráttunni?
Ekki alltaf sem maður fagnar sigri hjá Arsenal, en fyrir okkur Púllarana kom þetta sér afskaplega vel. Tímasetningin get kannski ekki verið betri fyrir Chelsea að tapa stigum. Nú þurfa mínir menn bara að sigra West Ham í kvöld og þá er toppinum náð. Ætla að leyfa mér að spá 2-1 sigri Liverpool, þetta verður ekkert auðvelt því WHU leikur með hjartanu þessa dagana, auglýsingalausir á búningunum og laskaðir eins og íslenska bankakerfið. Geirharður og Kátur setja hann inn á Anfield í kvöld. Verst að Torres sé áfram meiddur en við höfum sýnt að maður kemur í manns stað... ójá.
Nái Liverpool toppsætinu í kvöld þá verður það ekki gefið eftir svo auðveldlega. Kannski verður litið til þessarar helgar í vor sem örlagaumferðar um hverjir hreppa dolluna. Kemur í ljós.
You'll never walk alone....
Arsenal sigraði á Stamford Bridge | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
- annapala
- attilla
- bjarnihardar
- davidlogi
- esv
- elvabjork
- ellikonn
- eysteinn-thor
- gudrunvala
- hoskuldur
- jamesblond
- kalli33
- kristjanb
- raggibjarna
- ragnhildur
- rungis
- naiv
- seth
- sigurdurarna
- soli
- laufabraud
- gudni-is
- gusti-kr-ingur
- businessreport
- ornsh
- vitinn
- gattin
- muggi69
- sverrirth
- sveitaorar
- gudrununa
- okurland
- steinunnolina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007