Baa ba ba bla

Sannarlega samgleðst maður Reyknesbæingum og öðrum Suðurnesjamönnum með Ljósanótt, og vonandi skemmta allir sér hið besta, en mikið svakalega er maður búinn að fá leið á þessu Ljósalagi, sem dunið hefur yfir mann í útvarpinu daginn út og inn. "Ó Keflavík" og "baa ba ba ba" glymur í hausnum á manni á koddanum á kvöldið, mér liggur við að segja.  Svosem ágætis lag hjá Jóhanni Helgasyni, en hefði mátt spara það og setja ekki í loftið svona snemma. Lagið hefur gert það að verkum að allur áhugi á að fara á Ljósanótt hefur fokið út um veður og vind. Því miður er maður farinn að tala um Ljótalagið...

Hins vegar svolítið skondið að heyra af einhverri gremju í Njarðvíkingum yfir textanum. Íslenskur hrepparígur eins og hann gerist bestur, nema að þetta hafi verið trikk til að auglýsa upp hátíðina.


mbl.is Ljósanótt hafin í Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá losnar stæði fyrir bílinn minn...

Það er eftirsjá af Þóru Kristínu á Stöð 2, hún er röggsamur, áræðinn og faglegur fréttamaður. Spái því að hún verði fljótlega komin aftur á RÚV, og Óðinn Jónssonn áreiðanlega þegar búinn að hringja. Annars las ég eftir henni haft að hún hefði gert vænan starfslokasamning og það er vel. Nú þarf Steingrímur að sýna og sanna að hann sé trúverðugur fréttastjóri og láti fortíð sína í forsætisráðuneytinu ekki trufla störf sín. Skil áhyggjur Þóru í þessa veru, en vil að lokum vera svolítið leiðinlegur og fagna því að eitt stæði við Bólstaðarhlíðina er að losna!. Starfsmenn 365 hafa ekki úr mörgum bílastæðum að moða og Þóra meðal þeirra sem fundið hafa sér stað í næstu götu. Þetta kemur á besta tíma fyrir mig því það var verið að bæta við bíl á heimilið .....!!
mbl.is Þóru Kristínu sagt upp á Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýnd veiði, ekki gefin

Þó að þessi dráttur fyrir okkar menn í Liverpool líti vel út á pappírnum skulum við ekki fagna sigri of snemma. Þetta eru allt ágætis knattspyrnulið, sem erfitt er heim að sækja, ekki síst Besiktas þar sem blóð rennur fram af vörum manna. En drátturinn hefði getað verið verri, og þetta er aðeins fyrsta skrefið á toppinn í vor, þegar Rauði herinn tekur við dollunni. Mark my word!!
mbl.is United og Roma mætast aftur - Chelsea og Valencia einnig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dónaskapur í símaskránni!

Var bent á magnaðan hlut í símaskránni á netinu, www.ja.is, þegar smellt er á kort af landinu. Sláiði inn heimilisfangið Fífuhvammsvegur eða Smáratorg, og sjáiði hvað blasir við. Hafði reyndar oft séð áður hvernig viðkomandi mannvirki getur litið út frá vissum sjónarhornum, en þessi útgáfa var yndislega skýr og greinileg á götukortinu af Kópavogi. Já, það er upp á þeim risið þarna í Kópavogi, ekki furða þó að Goldfinger hafi verið lokað....

Með tárvot augu

Þetta var aldrei spurning, okkar menn með algjöra yfirburði allan tímann og hvílík vinnsla í þeim félögum í framlínunni Crouch og Kuyt. (Hvort segir maður Kát, Kuít eða Kút...?) Gaman að sjá hve nýju mennirnir eru að koma vel út, ég segi enn og aftur að við eigum eftir að hirða margar dollur í vetur, sjáiði til. Leikurinn í kvöld sýndi líka vel hve leikmannahópurinn er breiður. Þarna vantaði kappa eins og Gerrard, Carragher, Torres, Alonso og Voronin.

Það var tekið hraustlega undir í stofunni fyrir og eftir leik og sungið með You'll never walk alone, og minningarstundin fyrir leik um unga strákinn frá Liverpool, og aðdáanda Everton, fékk mann til að vökna um augun. Hjartnæm stund og greinilega margir harðjaxlar í stúkunni sem brustu í grát, enda þetta morð ekkert annað en hryllingur.


mbl.is Stórsigur hjá Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næstum því ekki nóg

Næstum því er ekki nóg, myndi einhver segja, og sannarlega óþægilegt að vita af þessum blessaða manni einhvers staðar í felum að undirbúa fleiri hryðjuverkaárásir. Flaug mér þá í hug eftirfarandi:

Þeir náð' onum næstum því

Newsweek það stendur í.

Ósóm' á Hlöðum,

á ókunnum stöðum,

undirbýr sprengjugný.


mbl.is Bandaríkjamenn náðu næstum bin Laden árið 2004
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 32271

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband