Færsluflokkur: Bloggar

Gerrard heldur minningunni á lofti

Til minningar um H-96Hverju orði sannar það sem Gerrard segir í þessari frétt, en verð að viðurkenna fáfræði mína að hafa ekki vitað að hann hefði misst frænda sinn í slysinu á Hillsborough. Þetta var sannarlega hörmulegur atburður og útsendingin gleymist seint hverjum þeim sem á horfði, hvað þá þeir sem voru staddir á leiknum. Ekki að undra að slysið hafi drifið Gerrard áfram í ljósi hans reynslu.

Ekki hefði verið verra ef Liverpool hefði unnið Chelsea í fyrrakvöld en ekki verður á allt kosið í lífinu. Liðið lék engu að síður með hjartanu og hefði hæglega getað haft sigur.

Í ferð minni á Anfield í haust var skrítin tilfinning að standa fyrir framan minningarstein við völlinn, þar sem stuðningsmenn leggja að blóm og kerti, til minningar um fórnarlömbin 96. Allir stoppuðu sem leið áttu um og drjúptu höfði um stund.

Til minningar um H-96Sé smellt á neðri myndina má sjá nafn frænda Gerrards á steininum, hinum 10 ára Jon-Paul Gilhooley, í nafnaröðinni vinstra megin neðan miðju.

Blessuð sé minning þeirra allra.


mbl.is Harmleikurinn hefur drifið Gerrard áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðlaus.....

Orðlaus...Hvað er hægt að segja eftir svona leik? Eiginlega ekkert, annað en að þessi leikur fer í sögubækurnar. Gerrard ekki með en við skorum fjögur mörk á Stampford Bridge, án þess að komast áfram! Stórkostleg skemmtun og erfitt að halda sönsum á kvöldvakt á meðan svona ósköp ganga á. Eftir svona leik er bara ekki hægt að gagnrýna nokkurn mann, það lögðu sig allir 100% fram. Ef gagnrýna á einhvern á vellinum þá er það Didier Drogba fyrir að vera eins og hann er, gjörsamlega óþolandi vælukjói sem framkallar grænar bólur á ólíklegustu stöðum...

Við erum amk fallnir úr Meistaradeildinni með miklum sóma og nú er það bara enski titillinn sem er í augsýn. YNWA...


mbl.is Fjögur mörk ekki nóg til að vinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullkomin páskasýning...

liverpool2009Meira að segja Benitez átti í erfiðleikum með að fagna ekki, þegar Torres skoraði seinna markið. Það hlýtur að koma að því að hann brestur í fagn. Þvílík mörk! Þau hefðu hæglega getað orðið fleiri, man í fljótu bragði bara eftir einu markskoti hjá Blackburn. Yfirburðirnir voru algjörir og án efa fara mörkin hjá Torres og Agger í hóp þeirra bestu í vetur. Það var enginn grísapungastíll yfir þessu eins og hjá ítalska "undrinu" Macheda hjá Man Utd. Sunderland átti svo sannarlega skilið annað stigið í þeim leik ef ekki öll.

Vonandi verða sömu taktar uppi á þriðjudaginn gegn Chelsea. Engin ástæða til að gefa upp alla von þó að staðan í hálfleik sé erfið.

Gleðilega páska!


mbl.is Benítez: Fullkomin svörun hjá leikmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar kom skýringin...

Sjóndaprir gáð séð það í gærkvöldi að Gerrard var ekki svipur hjá sjón(!) Þannig var um fleiri lykilmenn, eins og Alonso, Carragher og Torres. En þetta er alls ekkert búið, staðan er slæm í hálfleik en annað eins hefur nú gerst í sögu félagsins. Vonandi verður Gerrard hvíldur á laugardaginn, svo hann komi sprækur á Brúna eftir páska.

Maður vonar hins vegar að sumir leikmenn verði hvíldir af öðrum ástæðum, þ.e. þeim hversu þeir eru yfirleitt daprir. Ég leyfi mér að fullyrða að Lucas Leiva sé einhver jafnslakasti leikmaður sem fær að hanga inn í byrjunarliðinu fyrir það eitt, sennilegast, að vera brasilískur. Einnig hefur Rieira ekki verið að ná sér á strik. Því miður kom lítið út úr varamönnunum Babel og Dossena en maður hefur trú á að meira búi í þeim.

Dagskipunin til Benitez, og ætti í raun að vera fjöldakrafa allra Púllra á þessari jarðkringlu með því að senda tölvupóst á karlinn: Losaðu okkur við Lucas Leiva!!! Inná með Mascherano til að byrja með og styrkja svo miðjuna í sumar með einhverju góðgæti...

YNWA...


mbl.is Tvísýnt með Steven Gerrard
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og engin smá pressa...

Hetja dagsins...Það var lítið eftir af leðrinu í sófanum þegar þessi leikur var loks búinn í dag....! Þvílík spenna og þvílík dramatík. Að eiga fjögur skot í slána í einum hálfleik hefði samkvæmt venjulegri tölfræði dugað til að tapa leik eða náð jafntefli í mesta lagi. Loksins snerust heilladísirnar í lið með okkur og núna er mynd af Jússa Bennajúnn kominn á náttborðið með ömmu gömlu.....LoL

Nú standa spjótin á Ferguson og spurning hvort hann stenst betur álagið en gamli góði Massey hefur gert fyrir íslenska kotbændur gegnum tíðina...


mbl.is Benítez: Pressan er á United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði mátt spara úrslitin...

Til hvers að halda einhverja úrslitakeppni í tónlist ef Skagfirðingar eru annars vegar?!! Seisei...

Óþarfi fyrir þessa drengi að ómaka sig suður yfir heiðar, hefði mátt senda dolluna strax norður í ábyrgðarpósti!Grin

 Til hamingju Svartúlfar! Þið eruð sómi Skagafjarðar sverð og skjöldur.

Geiri minn kæri vinur! Þú getur farið að leggja hljómborðið og nikkuna á hilluna svona upp úr áttræðu, sæll og glaður, og látið þér nægja Hús frítímans þrisvar í viku, milli 16 og 18, með pásu !Smile

Loksins eru arftakarnir fundnir....


mbl.is Bróðir Svartúlfs sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

You aint seen nothing yet...

Rauði herinn óstöðvandiEkkert stöðvar mína menn í þessum ham. Þegar maður er farinn að vorkenna andstæðingnum þá er sigurvíman komin á æðra stig. Ansi var það nú harður dómur að gefa Friedel gamla rauða spjaldið en að sama skapi gleðilegt að Gerrard náði þrennunni. Hreint ótrúlegur leikur og hreint ótrúleg staða sem Liverpool er komið í. Átta umferðir eftir og möguleikar á dollunni bara töluverðir, sé miðað við spilamennskuna hjá liðinu þessa dagana. Bullandi sjálfstraust, leikkleði og markagredda ráða nú ríkjum á Anfield. Á sama tíma virðist Man Utd að hrynja saman af þreytu og pirringi. Spurning hvern Rooney ætlaði að hitta þarna í gær, dómarann jafnvel?!

Skemmtileg myndasyrpan hjá ensku sjónvarpsmönnunum  í dag sýndi að ekkert raskar ró Benitez, hann fer líklega ekki að taka upp á því á gamalsaldri að fagna marki. Þá væri hann með óráði. Hvað skyldi hann skrifa í nótubókina eftir hvert mark? Varla hver skoraði, það hljóta aðrir að sjá um það. Kannski er hann að skrifa innkaupalista fyrir konuna... :-)

Það sem virðist vera að gera útslagið, fyrir utan að sjálfsögðu magnaðan hóp og klókan þjálfara, er þó hvíldin sem Liverpool fékk á dögunum. Nú taka við tvær vikur í næsta leik og þá mæta menn endurnærðir. Amk ætlar maður rétt að vona það. Þetta er búið að vera of gott í síðustu þremur leikjum til að vera búið.

YNWA


mbl.is Gerrard með þrennu og eins stigs munur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fagnaðarefni og eins gott að dollurnar skili sér...

Rafa brosir stundum út í annað...Þessari frétt ber að fagna, þó ekki væri nema til að létta á ákveðinni óvissu kringum Anfield með stjóramálin. Nú ættu allir sem einn að geta einbeitt sér að áframhaldandi sigurgöngu á vellinum. Frábær árangur í síðustu leikjum hefur þarna væntanlega gert útslagið, hefðum við tapað fyrir Real Madrid og Man Utd hefði Benitez væntanlega þurft að taka pokann sinn í sumar, ef ekki fyrr. En það er þetta blessaða ef. Það er stutt á milli hláturs og gráts í þessum harða heimi.

Með þessum óvenju langa samningi munu kröfurnar aukast sem aldrei fyrr á liðið að skila einhverjum dollum heim á Anfield. Enn eru möguleikar á tveimur stórum í vor, sennilegast meiri líkur á Evróputitli en Englandsmeistaratitli. Ætla bara rétt að vona að við drögumst ekki á móti einhverju ensku liðanna í 8-liða úrslitum. Porto er óskadráttur.

Svo er það bara næsta verkefni að rúlla upp Aston Villa á sunnudaginn. Jákvæð teikn voru að sjá Benitez fagna sigrinum gegn Man Utd á leið til búningsklefa. Það sást amk bros hjá kallinumSmile


mbl.is Benítez samdi við Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upphaf að einhverju stærra

gerrarrrHvað getur maður sagt eftir svona stórkostleg úrslit? Auðvitað öskraði maður af kæti en satt best að segja örlaði á smá undrun yfir þessum gríðarlegu yfirburðum. Að fylgja eftir stórleik gegn Real Madrid með þessum hætti er ekkert annað en meistarastykki, líklega einhver sigursælasta vika félagsins að baki. Mann skortir einfaldlega lýsingarorð, geðshræringin var slík. Gerrard og Torres eru einfaldlega snillingar á góðum degi, vel studdir af vinnujálkum eins og Carragher, Hyippia og Kyut. Mörkin hjá Aurelio og Dossena krydduðu síðan stórkostlegan leik.

Að sjá frábæra knattspyrnumenn eins og Vidic og Van der Saar í tómu tjóni allan leikinn, og það á heimavelli, var áhugavert, svo ekki sé meira sagt.  Vonandi lækka úrslitinn rostann í Ferguson og hans tindátum eins og hobbitanum Rooney, og verða að sama skapi upphaf að góðum endaspretti hjá Liverpool í deildakeppninni. Þó að forskot Man Utd sé enn 4-7 stig þá er enn von, já já.

Við erum bestir!


mbl.is Liverpool fagnaði stórsigri á Old Trafford
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhver sá magnaðist lengi...

Þvílíkur leikur! Ekki þorði maður að spá 4-0 fyrir leik, hefði alveg verið sáttur við svona 1-0 eða 2-0. Þetta er eitthvað það besta sem maður hefur séð til liðsins lengi, grimmir eins og ljón allan tímann og Madridingar sáu aldrei til sólar. Að geta leyft sér að taka bestu mennina útaf þegar 20-30 mín eru eftir, og senda óharðnaða unglinga inná, segir allt um þennan leik. Gerrard sýndi og sannaði að hann er í algjörum heimsklassa og Torres tók landa sína í nefið. Skiptir engu þó einhverjir dómar voru vafasamir, það var aldrei spurning hvort liðið myndi sigra í kvöld, alveg frá fyrstu mínútu. Hefði getað verið 2-0 eftir fimm mínútur.

Þetta var orðið svo magnað á tímabili að það runnu gleðitár á hvarmi, svei mér þá, og YNWA-söngurinn hefur ekki ómað svo sterkt á Anfield lengi lengi. Nú gengur maður aldeilis sæll til náða...


mbl.is Liverpool burstaði Real Madrid 4:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband