Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Með Gerrard á bekknum og Torres á annarri löppinni... já já

Jússi góður...Já, já, þegar mikið liggur við eru mínir menn bestir, og Benitez klókur. Flott mark hjá Jússa, hann er seigur þegar á reynir. Mikið þarf að klúðrast á Anfield til að við komumst ekki áfram í 8-liða úrslitin. Og við með fleiri Spánverja í byrjunarliðinu en Real Madrid. Fyndið. Þegar á heildina er litið var þetta sanngjarn sigur, hinir rauðklæddu stjórnuðu leiknum lengst af - ef frá er talinn fyrsti stundarfjórðungurinn. Þá hefði Raúl blessaður alveg getað sett inn eitt mark. En til allrar hamingju gerði hann það ekki.

Hinum megin hefði Torres alveg getað potað tuðrunni inn skömmu síðar. Verra að drengurinn skyldi meiðast og lengstum spilaði hann á annarri löppinni. Í því ljósi, og að Gerrard sat á bekknum í 85 mínútur, er sigurinn enn sætari og merkilegri. Liðsheildin var frábær, allir voru með fulla meðvitund og á tánum allan tímann, kannski ef frá er talinn Rieira. Svo náði Babel blessaður ekki að sýna mikið.

Meistaradeildin er okkar deild, svo mikið er víst.


mbl.is Liverpool skellti Real Madrid - Naumur sigur Chelsea gegn Juventus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumurinn að fjara út...

HundfúltJæja, þá kom enn eitt jafnteflið. Ekki rættist draumurinn frá í nótt (sjá hér að neðan) og stóri titildraumurinn er svo gott sem úti. Sjö stig í Man Utd er heldur stórt bil - þó allt geti þó gerst. Þá þurfa heilladísir að snúast okkur í vil.

Þakka ber Káti fyrir hans frammistöðu í dag, hann gefst aldrei upp og Torres var óheppinn að fá ekki meira út úr þessum leik. Gerrard og Alonso var sárlega saknað á miðjunni, þar var ekkert að gerast og sóknirnar lengstum byggðar upp af öftustu mönnum. Innáskiptingar Benitez virkuðu ekki, hvorki El Zahr eða Babel komust í gang, og síðan er með ólíkindum, algjörlega hreinum ólíkindum, hvernig Lucas Leiva hangir inná alltaf hreint. Sá drengur kæmist varla í íslenska landsliðið, með fullri virðingu fyrir því. Hafi einhver séð td sendingu hjá honum heppnast í dag, þá vinsamlegast gefi sá hinn sami sig fram...

Nú er bara að herða sig upp fyrir leikinn gegn Real Madrid, kannski en enn von um Evróputitil, hver veit. YNWA!


mbl.is Enn eitt jafnteflið hjá Liverpool á Anfield Road
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mig dreymdi draum...

Tindastóll-TorresVar harður á því fyrir þennan leik að Torres myndi gera þrennu, en mér sýnist á fyrri hálfleiknum að það gangi ekki eftir. Algjörir klaufar þó að vera ekki komnir með 2-3 mörk, City hefði að vísu geta hæglega skorað eitt en Írland skaut sem betur fer beint á Reina.

En draumurinn í nótt var þess eðlis að gamla góða Tindastólsmerkið bar fyrir augu, mitt í einhverjum óræðum fagnaðarlátum. Fyrir þá sem ekki vita er merkið eins og öfugur þríhyrningur með T-ið áberandi. Ég gat varla ráðið þennan draum öðruvísi en að Torres myndi skora 3 mörk, ekki er það útaf velgengni Tindastóls þessa dagana :-)

En allur seinni hálfleikur er eftir og allt getur gerst...


mbl.is Nær Liverpool að minnka forskotið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tók sig upp gamalt fagn...

BROOOSAMaður var nú varla búinn að jafna sig eftir tapið gegn Everton í bikarnum þegar leikur okkar manna hófst í Hafnarmynni síðdegis. Ekki skánaði það þegar heimamenn komust yfir óverðskuldað í seinni hálfleik. Þá fór vélin loksins í gang og liðið sýndi hvað það getur þegar á reynir, og það án Geirharðs. Hef sjaldan blótað Hemma Hreiðars í sand og öskur en það gerðist er hann kom sínum mönnum yfir. Við áttum þá eitt tromp í hendi sem var Torres.

Kæmi ekki á óvart þótt jarðskjálftamælar hafi kippst við hér í Hlíðunum þegar sigurmarkið kom. Maður gekk af göflunum. Nú er það toppurinn aftur og mér segir svo hugur að Man Utd tapi stigum á morgun!

YNWA...


mbl.is Liverpool á toppinn eftir magnaðan sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 129
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband