Færsluflokkur: Bloggar

Rauðu jólin halda áfram

Vantaði heljarstökkið á Anfield í gær.Það er við hæfi að úti séu aftur komin rauð jól, jörðin hvítnaði svona rétt á meðan Liverpool var ekki að spila!! Vonandi er Rauði herinn orðinn óstöðvandi, Keane búinn að finna fjölina sína og greinilega fullur sjálfstrausts. verra er að Kátur er ekki alveg upp á sitt besta, eða einfaldlega í rangri stöðu á vellinum. Hann er öflugri á köntunum.

Rétt hjá Samma Lee að hvíla Gerrard fyrir næstu átök. Okkar menn munu þurfa á öllum sínum kröftum að halda gegn Owen og félögum hjá Newcastell (eins og Gaupi orðar það...).


mbl.is Lee: Höfum aldrei efast um Keane
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg rauð jól...

Rauð Liverpool jólMaður er farinn að halda að titillinn sé í augsýn, eða þá að eitthvað meiriháttar plott sé í gangi milli Liverpool og Chelsea. Jafntefli á jafntefli ofan, en hið versta er að á meðan gætu Rauðu djöflarnir nálgast okkur af Gömlu tröð.

Ánægjuleg jól fyrir Benitez og alla aðra hjá Rauða hernum. Svo sannarlega gleðileg rauð jól framundan. Man hreinlega ekki svo langt aftur hvenær Liverpool var síðast á toppi deildarinnar fyrir jólin. Enda skiptir það engu, núið blífur...


mbl.is Markalaust jafntefli Everton og Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglissjúkur dómari eyðilagði leikinn

Webb dómariÞó að maður fagni stiginu á Emirates-velli í dag, þá getur maður vel skilið gremju Arsenal-manna út í dómarann. Hef aldrei fílað Webb og hann sýndi það í dag að hann glímir við athyglissýki á hæsta stigi. Rauða spjald Adebayors var umdeilanlegt, sem og margir aðrir dómar á bæði lið. Við rauða sjaldið efldust heimamenn og Púllarar lögðu niður skottið, virkuðu óröuggir og voru klaufar að nýta sér ekki liðsmuninn. Niðurstaðan sanngjarnt jafntefli, hið fjórða í röð hjá Liverpool, og aðeins Newcastle hefur gert fleiri jafntefli í deildinni í vetur. Þetta er ekki nógu gott, við verðum ekki Englandsmeistarar með þessu framhaldi. En jólin eru rétt að byrja og vonandi hala mínir menn inn slatta af stigum.

Leiksins í dag verður minnst sem skólarbókadæmis um hvernig dómari getur eyðilagt toppleiki.


mbl.is Arsenal og Liverpool skildu jöfn, 1:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móralskt stig en mikið lifandis skelfing...

Eins magnað og það var hjá Gerrard að jafna leikinn 2-2 á nokkrum mínútum þá var það algjörlega ósættanlegt að bæta ekki við fleiri mörkum. Þrjú jafntefli í röð á Anfield gegn "litlum" liðum er ekki vænlegt ef félagið ætlar sér að hampa meistaratitlinum í vor. Ekki getum við endalaust flotið á hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum, líklegast fer Chelsea upp fyrir okkur með sigri á WHU. Eins vel og Rauði herinn lék í dag á köflum, þá sýndi þessi hraði leikur, ekki síst í fyrri hálfleik, að liðið er með of marga meðalmenn, bara sorrí, við verðum að viðurkenna það, Púllarar. Veikasti hlekkurinn er Bennajún, Dossena var úti á túni og Arbeloa er of mistækur. Kátur er vinnuþjarkur, sem við megum þó ekki missa, en hann er ekki að spila í réttri stöðu.

Ef Benitez leggur upp þá taktík að spila upp á miðja sóknina þá er Kátur ekki rétti maðurinn til að taka við skallaboltum. Liverpool sárlega saknar ljósastaura eins og Crouch og athyglisvert er að sjá hvernig Benitez heldur Robbie Keane núna út í kuldanum. Sama hversu leikmenn eru að spila illa inni á vellinum, Keane er ekki hleypt inn á eins og í dag. Hefði verið miklu meiri þörf á honum heldur en El Zahr og Leiva, sem skiluðu engu á lokamínútunum.

Ef mínir menn ætla sér Englandsmeistaratitil í vor verður að styrkja leikmannahópinn í janúar, svo einfalt er það.  Liðið hefur að vera gera marga góða hluti í vetur en mikill vill meira. Tími til kominn að selja eitthvað af þessum meðalmönnum. Og hana nú...


mbl.is Benítez vonsvikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djúpt áðí en ljúft...

Loksins skoruðu mínir menn mörk, það ekki bara eitt heldur þrjú stykki á rúmum 90 mínútum. Fæðingin var erfið en þegar hríðunum lauk á 70. mín var fátt sem stöðvaði Rauða herinn, meira að segja Jússi Bennajúnn skoraði. Eins gott fyrir karlinn því hann var búinn að fara illa með 1-2 góð færi. Athyglisvert að Benitez hvíldi Keane á bekknum, væntanleg fyrir næstu átök í Meistaradeildinni á þriðjudag, þó að það séu ekki mikil átök, við komnir áfram. Ekki nema að Keane sé ekki náðinni, blessaður.

Sigurinn í dag var afkskaplega kærkomin eftir jafnteflin og markaleysið undanfarið, viðurkenni að ég var kokhraustur fyrir leikinn gegn WHU sl. mánudag og spáin gekk ekki eftir, en mestu skiptir að við höldum toppsætinu og gefum það sko ekki svo glatt eftir.

Minni svo á að karlinn er kominn á Facebook, eða Snjáldurskinnu sem er ekki síðra orð. Fyndið fyrirbæri en skemmtilegt, m.a. búinn að stofna aðdáendaklúbb um Karlakórinn Heimi.


mbl.is Arsenal, Liverpool og Chelsea unnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandinn í hnotskurn?!

Er það ekki einhvern veginn svona sem fyrirtækin byggðust upp í þenslunni? Nema að núna eru allir farnir af skurðbarminum og eftir eru þrælarnir að þrífa upp skítinn eftir hina..... Ja sei sei

Fyrir hrunið


Örlagadagur í toppbaráttunni?

Ekki alltaf sem maður fagnar sigri hjá Arsenal, en fyrir okkur Púllarana kom þetta sér afskaplega vel. Tímasetningin get kannski ekki verið betri fyrir Chelsea að tapa stigum. Nú þurfa mínir menn bara að sigra West Ham í kvöld og þá er toppinum náð. Ætla að leyfa mér að spá 2-1 sigri Liverpool, þetta verður ekkert auðvelt því WHU leikur með hjartanu þessa dagana, auglýsingalausir á búningunum og laskaðir eins og íslenska bankakerfið. Geirharður og Kátur setja hann inn á Anfield í kvöld. Verst að Torres sé áfram meiddur en við höfum sýnt að maður kemur í manns stað... ójá.

Nái Liverpool toppsætinu í kvöld þá verður það ekki gefið eftir svo auðveldlega. Kannski verður litið til þessarar helgar í vor sem örlagaumferðar um hverjir hreppa dolluna. Kemur í ljós.

You'll never walk alone....


mbl.is Arsenal sigraði á Stamford Bridge
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæmur dagur hjá fleirum

Til allrar hamingju voru fleiri toppleið ekki að hirða þrjú stig í dag, mínir menn á hælunum og því miður ekki að gera sig með Gerrard uppi í stúku. Það er mikið álag á liðunum sem taka þátt í Meistaradeildinni og svo virðist sem eitthvað slen sé yfir þeim þessa dagana. Til viðbótar voru landsleikir í vikunni hjá flestum þjóðum og þetta hlýtur að taka í.

Vonandi skánar þetta fyrir törnina yfir jólin, og Geirharður fer í gang eftir kærkomna hvíldina. Englandsmeistaratitillinn er enn í seilingarfjarlægð, vitiði til. Það kemur dagur eftir þennan dag.

ps. fékk þetta sent í tölvupósti, kærkomið efni til að stytta stundir í skammdeginu, nokkur mismæli íslenskra íþróttafréttamanna:

,,Staðan er Liverpool tvö, Ipswich núll, og ef staðan helst óbreytt spái ég Liverpool sigri í leiknum

Hingað til hefur liðinu ekki tekist að bæta árangur sinn sem hefur verið 100%

Litadýrðin á vellinum er stórkostleg, næstum allir Brasilíumennirnir eru í gulum treyjum

Ef þessi bolti hefði farið í netið er ég viss um að það hefði endað með marki

Ég trúi því statt og stöðugt að ef annað liðið skorar mark þurfi hitt að skora tvö til að vinna

Ef annað liðið skorar snemma í leiknum nær það forystu fljótlega

Það er ekki nokkur leið að geta talið allan þann fjölda sendinga sem þarna gekk á milli manna, en þær voru átta

Leiknum verður sjónvarpað í sjónvarpinu

Við erum stödd á leik FH og Hauka í Hafnarfirði og það eru Hafnfirðingar sem eru með boltann."


mbl.is Benítez: Slæmur dagur hjá okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægfara en hugsa hratt...

Gamall maður á góðri stundÞennan rak á fjörur mínar frá ónefndum vinnufélaga sem farinn er að huga til efri áranna með gleði og eftirvæntingu í hjarta...:

Gamall maður hafði komið sér vel fyrir á landareign sinni. Á jörðinni var stór tjörn og umhverfis hana var svolítill skógur. Dag einn ákvað gamli maðurinn að fara niður að tjörninni og tók með sér stóra fötu í því skyni að tína nokkra ávexti á leiðinn. Þegar hann nálgaðist tjörnina heyrði hann hlátur og gleðiköll. Gamli maðurinn áttaði sig á því að þarna voru ungar konur að baða sig naktar í tjörninni . Hann hóstaði svo stúlkurnar gætu áttað sig á nærveru hans. Þær syntu lengra út í tjörnina, hvar hún var dýpst, til að skýla sér. Ein kvenanna hrópaði til hans:,,Við komum ekki uppúr fyrr en þú ert farinn!"  "Það er allt í lagi: Ég kom ekki hingað til að horfa á ykkur naktar eða til að reka ykkur upp úr," sagði gamli maðurinn. ,,Ég kom til að gefa krókódílnum að éta."

Boðskapur sögunnar: Þó gamlir menn hreyfi sig hægt, þá eru þeir snöggir að hugsa........


Bond á mörkum hins blóðrauða

JamesBond

Fór á Bond um helgina með drengnum (13 ára) og hinn breski harðjaxl stendur undir nafni, hörkufín mynd með öllum þeim brellum og hasar sem Bond er bestur í, amk hinn nýi Bond, Daniel Craig. Massaður gaur og svellkaldur, leikur víst flest áhættuatriðin sjálfur. Um leið nær hann að sýna trúverðuga ástarsorg yfir örlögum Vesper í Casino Royale og er ekki að fara upp á hverja sem er.

Einhvern veginn nær Quantum of Solace þó ekki sömu hæðum og Casino Royale, þó að ég geti tekið undir með mörgum um að þessi nýjasta mynd er með þeim allra bestu sem gerðar hafa verið um njósnara hans hátignar. Mætti hafa meiri húmor innan um hamaganginn.

Það sem vekur sérstaka athygli mína er að Kvikmyndaskoðun skuli ekki hafa bannað þessa mynd börnum undir 16 ára aldri. Ofbeldið er síst minna en í síðustu mynd, hef ekki töluna á þeim sem Bondarinn banar og í sumum tilvikum á hrottafenginn hátt, fórnarlömbunum blæðir út, menn eru teknir úr hálsliðnum, beinbrotnir og þannig mætti lengi telja.

Veit ekki hvaða mörk Kvikmyndaskoðun setur sér en einhver hefði nú verið fljótur að banna þessa mynd undir 16 og rauðmerkja hana. Guli liturinn með bannað innan 12 ára er of lágt. Ég sé á vef Kvikmyndaskoðunar að heimilt er að banna bíósýningar undir 14 ára aldri og þau mörk hefðu verið mun raunhæfari. Kvikmyndahúsaeigendur eflaust kætast yfir þessu og fá meira í kassann með gulu merkingunni. Hvað segir umboðsmaður barna? Bara spyr.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 32071

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband