Kærkomin tilbreyting

Þökk sé himnaföður fyrir heppnissigur svona í byrjun aðventu ... Kominn tími á að lukkudísirnar varpi sprotum sínum yfir Rauða herinn og það gerðist á Goodison Park. Erfitt að skilja hvernig þeim bláklæddu tókst ekki að skora en sem betur fer var Reina í stuði. Vörnin átti sína takta en hefur verið traustari.

Gamli góði karakterinn var ekki langt undan og við hæfi að vinnuþjarkurinn Kuyt innsiglaði heppnissigurinn. Gerard átti sinn þátt í því en sást varla að öðru leyti. Hann er ekki svipur hjá sjón þessa dagana og á nokkuð í land með að ná sínu fyrra formi. Vonandi að Torres fari að skila sér, og þá fer þetta nú eitthvað að ganga. Miðað við hamaganginn í dag er gott að enginn meiddist, nógu langur er nú sjúkralistinn. Alltaf verið grófir þeir bláklæddu og hinn hárprúði Fellini ekki barnanna bestur.

Það er enn von í efstu sætin. Þó að alltaf sé vont að sjá Chelsea vinna og montgerpið Drogba að skora, þá var skömminni skárra að Arsenal tapaði stigum í dag. Fyrsta markmið Liverpool er að ná 3. sætinu áður en ofar verður klifrað. Fullt af stigum eftir í pottinum enn.

Svo er það bara UEFA-bikarinn í vor... :-)  já, já seisei....


mbl.is Liverpool vann borgarslaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband