Mestu vælukjóar allra tíma...

Þó að ekki séu þeir blóðskyldir þá dettur manni samt í hug orðatiltækið sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Ronaldo hefur tamið sér sama ósið og Ferguson að vera sífellt vælandi út í dómarana, að ógleymdum leikaraskapnum í Ronaldo sem fellur í gras við minnstu snertingu, emjar með tilþrifum og kveinar, sjálfsagt mest ef hárgreiðslan fer úr skorðun. Reyndar er brilljantínið svo mikið í hárinu að það þolir töluvert hnjaskLoL

Vælið hefur m.a gert það að verkum að ekki einn einasti dómari í deildinni þorir td að dæma víti á Man Utd á Old Trafford. Þannig er það nú bara... Þeir eru orðnir drulluhræddir við gamla Ferguson...


mbl.is Ferguson: Ronaldo auðvelt skotmark dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ekki sammála , ronaldo er buinn að minnka þetta mjog mikið , en ekki menn eins og drogba .. og i leiknum á móti tottenham það var klárlega víti og dómarar eiga bara ekki að vera i þessu starfi ef þeir geta ekki tekið ákvörðun án þess að vera að hlusta á áhorfendur eða einhverja aðra sama þótt þeir væli , á dómarinn að vera að hlusta á það'? nei bara gefa spjald ......

bjarni (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 17:31

2 identicon

Vá....þetta er liverpool-lega sagt hjá þér.....En gleymum ekki einu.....Gerrard dýfði sér þegar hann fékk vítið í úrslitaleiknum í meistaradeildinni 2005, það var DÝFA sem gerði það að verkum að þeir náðu að jafna.....kannski var það þessi dýfa sem gerði það að verkum að þið unnuð meistaradeildina það árið. Og komust uppað hlið Porto, sem lið sem var langt frá því að vera það besta í Evrópu, en náðu samt að vinna meistaradeildina. Og hvað með það að hann væli??? Hann á skilið að væla miðað við hvernig er komið OFT fram við hann. Auðvitað er óþolandi að sjá þá velta sér upp úr smávægilegum meiðslum, ömurlegt....en menn komast samt alltof oft hjá því að vera bókaðir vegna þess að þetta er Ronaldo. Hann á það skilið upp að vissu marki, en leiðinlegt er að vita að hann væri eflaust markahæstur í deildinni ef allt væri rétt.

Pétur (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 18:30

3 identicon

Þetta er alveg ótrúlegt með að þegar það er verið að tala um dýfur hjá Ronaldo, þá koma allir utd menn og taka fyrir "dýfuna" hjá gerrard í meistaradeildinni fyrir 4 árum. Í bók Gattuso sem kom út seinna, segir Gattuso þetta hafa verið snertingu. Er Gattuso að ljúga, nei held ekki!

Jóhann (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 18:52

4 Smámynd: Ragnar Martens

Heehee Er ferge að væla?

Er Benetez ekki búinn að vera vælandi yfir hinu og þessu í allan vetur? Hann tók smá pásu núna því hann veit að hann á ekki séns lengur í Enska titilinn.

Eða bara titill, til hvers að vera væla ef það er ekki til neins?

Ragnar Martens, 6.3.2009 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband