Dómarar farnir á taugum?

Samgleðst með Arsenal-mönnum með að hafa náð toppsætinu í dag, miðað við mörkin sem þeir skoruðu eiga þeir heiðurinn skilinn. Það verður nú bara að segjast eins og er, en ætla rétt að vona að mínir menn hjá Liverpool fari að hysja upp um sig buxurnar. Þeir voru arfaslakir í dag og voru ljónheppnir að sleppa frá Hemma Hreiðars og félögum með eitt stig.

Verstur var þó hinn annars ágæti dómari og heiðursmaður Mike Riley, sem á einhvern óskiljanlegan hátt dæmdi vítaspyrnu á Púllarana. Til allrar hamingju varði Reyna en maður veltir fyrir sér hvort dómararnir í enska boltanum séu að fara á taugum, ekki síst í leikjum stóru liðanna, og farnir að flauta við minnsta atvik inni í teignum. Í annað sinn á skömmum tíma fær Liverpool á sig fáranlegan vítaspyrnudóm, í fyrra tilvikinu var dómarinn sendur í frí og það kæmi manni ekki á óvart að svipuð örlög bíði Riley. Annað hvort á hann að fá gula spjaldið eða þá að dómarar verða að vera samkvæmir sjálfum sér og fara að dæma víti ef leikmenn anda ofan í hálsmálið á hverjum öðrum!


mbl.is Arsenal í toppsætið eftir 1:3 sigur á Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: arnar valgeirsson

ekki svona sár strákur. ekki svona sár.

bara halda með leeds. búnir að taka sex í röð. komnir upp úr fallsæti.

í deildinni sinni....

púllarar eru KR englands. þarft að bíða þangað til þú verður ellilífeyrisþegi eftir aðaldollunni. vinna þá tvö ár í röð og svo þarf sonur þinn að bíða þangað til hann verður ellilífeyrisþegi eftir næstu. wake up björn.

arnar valgeirsson, 15.9.2007 kl. 21:27

2 identicon

Arnar minn, gaman að heyra af velgengin Leeds, en þú ætlar þó ekki virkilega að halda því fram að þetta hafi verið vítaspyrna í dag? Efast um að þú hafir séð leikinn, þetta var brandari dagsins. Þetta var ekki víti frekar en ég heiti Jósefína...

Björn Jóhann (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 22:40

3 Smámynd: Karl Jónsson

Ég var að blogga stuttlega um ensku deildina þar sem ég sagði að búið væri að leiðrétta stigatöfluna frá því í síðustu viku. ;o)

Karl Jónsson, 17.9.2007 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 129
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband