Góð helgi eyðilögð

Það er ekki tekið út með sældinni að vera dómari í enska boltanum en vælandi blámenn í Chelsea settu það mikinn þrýsting á Robbie þennan Styles að hann eyðilagði fyrir manni annars frábæra helgi. Allur umheimurinn sá að þessi vítaspyrnudómur var gjörsamlega kolklikkaður og greinilegt var að dómarinn uppgötvaði það eftirá, hann fór bókstaflega á taugum og missti leikinn úr höndum sér og vörum. Það var hreinn stuldur að blámennirnir hirtu eitt stig frá þessum leik, Liverpool var á góðri leið með að bæta við öðru marki þegar ósköpin dundu yfir.

Ekki að undra að forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar séu búnir að gefa Styles leyfi. Hann á amk ekki afturkvæmt á Anfield, svo mikið er víst.


mbl.is Steven Gerrard: Viðurkenndu mistökin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raddir sem mega ekki þagna

Íhaldsemin í manni sér til þess að kveikja alltaf á 9-fréttum RÚV á morgnanna til að hlusta á Bjarna Fel flytja íþróttafréttir. Hann klikkar ekki rauðbirkni KR-ingurinn og ætti að vera í loftinu sem oftast. Verst er að missa hann af skjánum með enska boltann, eitthvað svo heimilislegt að hlusta á hann lýsa mörkunum líkt og allt sé í beinni útsendingu. Þeir félagar á Sýn2 ættu að sjá sóma sinn að fá Bjarna til sín, eða heimila RÚV að sýna mörkin einu sinni í viku, líkt og Skjárinn samdi við Sjónvarpið í fyrra.

FLeiri útvarpsraddir má nefna, m.a. Sigurð G. Tómasson og Gissur Sigurðsson. Eðalsútvarpsmenn og lagið sem Sigurður leikur í upphafi hvers þáttar á Sögu er algjör klassík. Vals með rússnesku ívafi sem fær mann alltaf til að slá taktinn og raula með. Um mann fer nettur hrollur við að hlusta á Gissur, vonandi fer hann að koma úr fríi sem fyrst.


Voronin lofar góðu

Kominn tími til að tjá sig eitthvað um sitt lið. Það lofar góðu fyrir komandi tímabil og sér í lagi þessi Voronin, hörkuduglegur og tekniskur, með gott auga fyrir spili. Benitez kominn með töffaralega greiðslu og skegg og léttur bragur yfir mannskapnum. Sá nú reyndar lítið af leiknum í dag en eitt mark á útivelli ætti að duga fyrir seinni leikinn á Anfield.

Nú fer söngur að heyrast á heimilinu um nýjan Liverpool-búning. Ungur og efnilegur Púllari hreyfst svo af Gonzales á sínum tíma að hann lét þrykkja nafn hans á búninginn. Eftir það komst sá ágæti leikmaður varla í liðið, og ku vera horfinn úr herbúðum Liverpool. Það er þó til einn minjagripur um hann, sem mætti prófa að selja á e-bay er fram líða stundir....


mbl.is Liverpool sigraði Toulouse í Frakklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningaþvætti í Hlíðunum

Dagurinn í dag byrjaði ekki gæfulega, peningaveskið týnt og eigandinn hafði í fyrstu ekki minnstu hugmynd um hvar auðæfin væru niðurkomin. Sérlega óþægileg tilfinning, eins og að hafa misst ástvin. Ekki bara greiðslukortin heldur stimpilkortið, golfkortið, Liverpoolklúbb-kortið, gjafakort, tryggingakort og þannig mætti lengi telja. Til að koma í veg fyrir stórtjón var þeim kortum lokað sem hægt var að loka, á meðan dauðaleit stóð yfir. Hún bar lítinn árangur, eða þar til að lítill neisti kviknaði á hádegi.

Viti menn, blessað veskið hafði endað í þvottavélinni, í rassvasa á buxum sem fóru víst í hreinsun í gærkvöldi. Hvernig gat maður munað eftir því?! Ég viðurkenni hérmeð peningaþvætti, en vona að sleppa undan krumlum Halla Jó, Jóns HB og félaga. Kannski er þetta byrjunin á Alsheimer-light en mikið rosalega var ánægjulegt að sjá öll kortin aftur, hrein og fín, og lífið gat haldið áfram....


Fagnaðarefni

Eftir að hafa ekið nýlega um jósku heiðarnar í Danaveldi, og kynnst svona rifflum af eigin raun, er sérstakt ánægjuefni að Vegagerðin ætli að prófa sig áfram með þetta hér á landi. Á akstrinum í Danmörku svínvirkaði þetta á mann, amk í fyrsta sinn er ekið var yfir þessar línur. Manni dauðbrá, slíkur var hávaðinn, og viðbrögðin ætíð þau að bíllinn var réttur af hið snarasta. Engin spurning að þetta mun draga úr hættu á slysum, ekki síst hjá þreyttum og svefnlitlum ökumönnum. Áfram Vegagerðin! Einnig gaman að sjá G. Pétur Matthíasson á skjánum aftur, gamli og góði fréttamaðurinn kominn "hinum megin við borðið", og í grænu vesti í þokkabót.
mbl.is Rannsókn gerð á vegrifflum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumadauðdagi

Hver hefur á móti því að lifa til 114 ára aldurs, og látast þá úr elli?! Það er mun gáfulegri endalok en verða td fyrir bíl. Annars ætlaði maður ekki að tjá sig um örlög annars fólks, en stóðst ekki freistinguna að þessu sinni. Auðvitað á ekki að gleðjast yfir óförum annarra en þessi frétt er svolítið "skemmtileg".
mbl.is Elsta manneskja í heimi látin - úr elli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband