Arsenal í augsýn

Hélt að þessi staða kæmi ekki upp en nú er jafnvel möguleiki á að velta Arsenal úr sessi í þriðja sætinu, bara fimm stig í Liverpool í fjórða sætinu eftir sætan sigur á Blackburn í dag. Meira að segja Wenger er búinn að játa sig sigraðan í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn. Fjórar umferðir eftir og allt getur gerst fyrir okkur Púllara.

Djúpt var á mörkunum í Anfield gegn þrautleiðinlegu liði Blackburn, og hefðu þau ekki litið dagsins ljós hefði Whiley dómari því miður orðið maður leiksins. Engu líkara en hann hafi vaknað ósofinn í morgun með þessum orðum: "Í dag mun Liverpool ekki fá vítaspyrnu hjá mér, sama þótt Gerrard verði felldur þrisvar í teignum." En sem betur lét Gerrard þetta ekki á sig fá, fór algjörum hamförum í sínum 300. deildarleik, skoraði eitt magnað mark og lagði upp annað fyrir Torres. Með þessa tvo í ham, og hina funheita, verðum við Evrópumeistarar!


mbl.is Benítez: Vissi að við myndum skora
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála...við náum Gunners en við áttum ekki að fá víti í dag,ætla rétt að vona Gerrard fari ekki að venja sig á þennann ósið

Helgi púllari (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 21:30

2 Smámynd: Eysteinn Þór Kristinsson

Blessaður vertu, hann datt þrisvar, þið eruð búnir að fá nóg af gjöfum undanfarið í vítateignum, svo ekkert væl væni minn........... Það segir kannski sitt um Lifrarpollinn að þó allt hafi gengið á afturfótunum hjá okkur síðan í febrúar er vart hægt að segja að þið séuð farnir að nart í hælana á okkur.

Eysteinn Þór Kristinsson, 14.4.2008 kl. 11:50

3 identicon

Eysteinn minn, svo öllu sé nú til haga haldið þá má benda á að byrjun febrúar voru þið efstir í deildinni með 60 stig og heilum 17 stigum fyrir neðan var Liverpool í 5. sæti með 43 stig. Ef það heitir ekki að narta í hælana að minnka bilið úr 17 stigum í 5, þá heiti ég Metúsalem... Við erum komnir svo nálægt að við erum farnir að finna táfýluna....

Björn Jóhann (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 16:32

4 Smámynd: Eysteinn Þór Kristinsson

Þið náið okkur aldrei - naní naní bú bú

Eysteinn Þór Kristinsson, 15.4.2008 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband