Áttum þetta skilið - sorrý

Hárrétt hjá Benitez að Bennett dómari breytti gangi leiksins, en mínir menn voru einfaldlega ekki nógu góðir - því miður. Vörnin var úti að aka, Gerrard varla svipur hjá sjón og Torres sívælandi, og þótt Reina hafi á stundum virst óöruggur í markinu þá bjargaði hann okkur nokkrum sinnum meistaralega í frábærum úthlaupum. Torres hafði eitthvað til síns máls um að spjalda Ferdinand fyrir olnbogaskot, og "vonandi" hefur hann klæmst nógu mikið við dómarann til að réttlæta gula spjaldið fyrir mótmæli. Eins og það virkaði heim í stofu var þetta harður dómur. En síðan kom skandallinn, og það sem eyðilagði leikinn fyrir okkur. Tuðið í Mascherano var auðvitað ekkert annað en asnaskapur, maður kominn með gult spjald, og ótrúlegt að félagar hans reyndu ekki að koma honum burtu. Nær hefði verið fyrir Benitez að húðskamma Mascherano fyrir óíþróttamannslega framkomu, dómgreindarleysi leikmannsins var algjört. Ef breska knattspyrnusambandið sektar hann ekki, ætti Liverpool að gera það.

Dómararnir eru ekki fullkomnir, og þessi Bennett átti ekki góðan dag, en leikmenn verða að halda aftur af sér. Framkoma eins og við urðum vitni að í dag, varð til þess að eyðileggja leikinn. Því miður. Mascherano er eiginlega búinn að rústa páskafríinu....Angry


mbl.is Benítez: Óskiljanlegt rautt spjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var ekkert að dómgæslunni í leiknum.

Kv. Knattspyrnudómari

Hósi (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 17:59

2 Smámynd: arnar valgeirsson

sá ekki þennan en sá þó seinni hálfleikinn hjá chelsea og arsenal. og þar af leiðandi öll mörkin.

sá líka mínar hvítklæddu hetjur hala inn þrjú stig í gær. fannst reyndar leitt að það var ekki hægt að stóla á ykkur í dag, ræflarnir.

af tvennu illu vildi ég fremur arsenal en skumsarana taka þetta.

arnar valgeirsson, 23.3.2008 kl. 20:26

3 Smámynd: Eysteinn Þór Kristinsson

Sammála félagi. Kannski ekki besti dagur Bennetts en Mascherano var alveg úti að skíta......... Hlökkum til að taka á ykkur í næstu viku og þar næstu!

Eysteinn Þór Kristinsson, 27.3.2008 kl. 12:19

4 Smámynd: Björn Jóhann Björnsson

Eysteinn minn, tilhlökkunin er gagnkvæm en tilfinning mín enn sú sama, þ.e. að senn styttist í að Evrópudraumur ykkar verði úti. Þið megið hirða stigin þarna í deildarleiknum á milli...

Björn Jóhann Björnsson, 28.3.2008 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 129
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband