Fleiri um hituna - gleðilegt árið!

Réttnefni á titli til handa Svandísi er stjórnmálamaður ársins, kannski ekki maður ársins yfir það heila. En þarna fer kjarnorkukona sem á eftir að láta enn meira af sér kveða á hinu pólitíska sviði. Að minnsta kosti arftaki fundinn í stað Steingríms J. sem hefði eflaust gott af því að skipta um hlutverk. 

Ágætt val hjá Stöð 2 í dag er fréttastofan valdi fíkniefnalögregluna, fyrir frábæran árangur á árinu. Endalaust hægt að rífast um svona kosningar, þó standa aðrar sveitir nærri manni sem gera tilkall til verðlauna en það eru björgunarsveitirnar. Hef aldrei skilið hve margir nenna að standa í þessu sjálfboðaliðastarfi, að hætta stöðugt lífi sínu og limum fyrir okkur hina. Þetta eru hinar einu sönnu hetjur. Verst er hvað veðurguðirnir eru þeim lítt hliðhollir í ár varðandi sölu á flugeldum. Skiljanlegt að salan sé minni en í fyrra, því hver nennir að standa úti í hífandi roki og horfa á láréttar flugeldasýningar með tilheyrandi stórhættu á limlestingum?

Lífleg Kryddsíldin hjá Stöð 2 í dag og þar fór Guðni Ágústsson á kostum, gaf það skýrt til kynna að hann væri formaður Framsóknar næstu árin, framsóknarmaddamman holdi klædd eins og hann komst að orði. Var að sjálfsögðu ítrekað minntur á hve stutt er síðan hann steig upp úr ráðherrastóli. Guðni og þáttastjórnandinn, Sigmundur Ernir, voru í skringilegri stöðu eftir að hafa ritað saman söguna um Guðna af lífi og sál, og bar þau skrif nokkrum sinnum á góma. Pínlegt var reyndar þegar Guðni var að tala um vímuefnavandann í þjóðfélaginu þegar þjónn á Hótel Borg   spígsporaði í kringum hann við borðið með brennivínsflösku! Steingrímur var einnig í stuði, upplýsti að hann hefði alvarlega verið að íhuga að hætta við að mæta sökum kostunar Alcan á þættinum og skaut föstum skotum að fyrirtækjum og fjölmiðlum. Hvenær verður messan á aðfangadag kostuð? spurði Steingrímur og var stórlega misboðið. Ingibjörg Sólrún og Geir pössuðu upp á landsföðurímyndina og Guðjón Arnar komst klakklaust í gegnum þáttinn, ekki frá því að karlinn hafi lagt eitthvað af!

Allir ætluðu stjórnmálaforingjarnir að vera við Kryddsíldarborðið að ári liðnu, varla þó Steingrímur ef Stöð 2 heldur áfram að kosta þáttinn og formaður VG að standa við stóru orðin.

ps. Hér hefur lítið verið bloggað síðustu vikurnar og þá fyrst og fremst af persónulegum ástæðum og meðfylgjandi ritstíflu. Kannski að það lagist á árinu 2008 - en óska öllum árs og friðar til sjávar og sveita. Skál !!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Svandís maður ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: arnar valgeirsson

vel ritfærir menn þurfa ekki að þjást af ritstíflu þó púllararnir geti ekki skorað mörk. og heppnir að vinna derby. endurtek, heppnir að vinna derby.

en það væri gaman að fá meira en eina færslu á mánuði 2008 ha.

svandís er frábær og á allt gott skilið. kannski too much að vera maður ársins, en tek undir með þér að björgunarsveitarfólk, eins og það leggur sig, er fólk ársins, bæði þessa og allra hinna gömlu.

óska ykkur fjölskyldunni alls góðs á nýju ári. bæði hlíðabúum og króksurum. einnig frömmurum og tindastólsliði. þó kannski ekki liverpool.

arnar valgeirsson, 31.12.2007 kl. 19:29

2 identicon

sömuleiðis nýárskveðjur Arnar minn, gott að vita að ég hef þó ekki misst minn dyggasta stuðningsmann, ég veit innst inni að þú ert Púllari þó að þú viljir ekki viðurkenna það. Kveðja úr rokinu að norðan, hér var sko kveikt í brennu og flugeldasýningu og ekkert verið að spá í ESB-reglugerðir um 15 metra á sekúndu!

Björn Jóhann (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 04:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Björn Jóhann Björnsson
Björn Jóhann Björnsson

Höfundur er kotroskinn og kærulaus Króksari að uppruna.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 129
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndböndin

Fögnuður úr böndum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband